blogg vegna eftirspurnaAnna Guđrún Halldórsdóttir
í alvöru talað, Beta og Jóhanna, það les pott þétt enginn þetta blogg nema þið!! en þar sem þið báðuð svona fallega skal ég skella inn smá færslu..það er kominn vetur núna og önnin í skólanum örugglega hálfnuð... er að byrja á BA ritgerðinni minni sem mun fjalla um þjónustu aldraðra og er á fullu í ræktinni... er að vinna á sambýli í vetur sem er svo sem ágætis vinna hehe...
annars verð ég nú bara að segja að það er eiginlega ekkert að frétta... Beta ætti nú að vita það að blogg eru dauð, núna nota allir facebook en jóhanna mín... hvernig væri nú að fá sér bara face og vera eins og allir hinir svona til tilbreytingar! ef þú ferð inn á www.facebook.com þá er mjög einfalt að skrá sig inn, meiri að segja ég gat það hehe...
en já það er víst kreppa í landinu.. ætli það sé ekki bara best að vera fátækur námsmaður núna með engar eignir og ekki neitt? hugsa það bara.. allavega finn ég ekkert svakalega fyrir þessu öllu saman...
en hey.. þetta telst sem blogg er það ekki? er ég þá látin í friði næstu 3 mánuðina eða svo.. hehe... sagði ykkur að ég hef EKKERT að segja... en samt fyndið að það er svo langt síðan að ég bloggaði að það er meiri að segja búið að breyta lúkkinu á bloggar.is hehe... þetta datt mér ekki í hug...
allavega... fáið ykkur face ef þið viljið fylgjast með mínu lífi... nennekki að stússast í þessu blogg dæmi... skal byrja aftur eftir nokkur ár þegar ég verið farin að unga út börnum og held út barnalandssíðu.. hehe...
allavega
seeya leiter!
Hola!Anna Guđrún Halldórsdóttir
jæja.. er kominn tími á nýtt blogg hjá mér eða?? hehe... hmmm hvað er búið að gerast síðan seinast...well.. ég réði mig í nýja vinnu.... er að vinna á dagþjónustu fyrir þroskahamlaða og það er bara æði... verð síðan að vinna á sambýli með skóla í vetur... þetta verður fínt líf...
ég fór til spánar.. sem var BARA gaman!! hef sjaldan skemmt mér jafn vel og þá og átt jafn góða afslöppun í leiðinni.. hehe... fórum í snilldar bíltúr til Benedorm sem tók rúma 3 klst.. ferð sem tekur um 1 klst... hehe... skulum bara segja að patti hefði átt að skoða gps tækið sitt betur áður en við lögðum af stað.. en það er önnur saga.. hehe.. hitti Bryndísi sætu sem var frábært... varð smá tönuð... svona miðað við hvernig ég er dags daglega... komst að því að bretar eru væmnir, alvarlega væmnir... fékk koss frá Eyfa félaga... og svo margt fleira sem ég man ekki alveg í augnablikinu... JÚ! annars.. skemmti mér mjög vel á 17.júní með tonn af íslendingum að borða SS pylsur...
hamingjudagar á hólmavík eru liðnir.. það var alveg æði.. veðrið lék ekki við okkur þá helgi en það hindraði ekki fólk í að skemmta sér glimrandi vel... skemmti mér svakalega vel á ballinu, í eftirpartý hjá Sigga Túra félaga og seinast en ekki síst að grilla hrefnukjöt kl 7 um morguninn með nokkru vel völdnu fólki! Takk fyrir góða hátíð
Kíkti á Írska daga.. var þar í like 2 tíma... gat ekki meir vegna þess hversu vel ég skemmti mér kvöldið áður í 22 ára afmælinu hennar Magneu minnar.. hún er btw alveg að verða 23 MÚHAHAHA.. hehe..
Bryggjuhátíð var síðan um seinustu helgi.. það var GEGGJAÐ! æðislegt veður! gott fólk! góður matur! mis góður fótboltaleikur! æðislegt ball! vá hvað ég skemmti mér vel.. veðrið lék við okkur alla helgina og toppaði algjörlega helgina... fullt af slúðri af ballinu sem maður á nú ekkert að vera að nefna á veraldarvefnum en þið eruð væntanlega flest öll búin að frétta.. hehe...
annars er lítið að frétta... er að fara að vinna næstu 3 helgar og þá fjórðu er ég að fara á kántrýdaga á skagaströnd... get ekki beðið.. ætli veðurguðirnir leiki ekki við okkur þá... já eða fyrir okkur! hehe... það verður æði.. mun sko mæta þar hress og kát...
en jæja.. best að fara að horfa á myndina sem ég var að downloada...
see ya
Góđa kvöldiđAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja.. ég ákvað að henda í eina bloggfærslu.. þótt ég hafi nú ekki mikið að segja...helst í fréttum er það að það er loksins búið að verð að því.. ég ákvað að klippa á naflastrenginn og fara ekki heim í öryggið í sumar heldur vera áfram í sódómu og reyna að hugsa um mig sjálfa... hvað var maður að pæla?ég er ekkert orðin fullorðin... það er bara kjaftæði.. hehe
annað í fréttum er það að ég er að fara til spánar eftir rúma viku, réttara sagt 10 daga... hversu kúl er það? er að DEYJA úr spennu btw... en hey það verður geggjað...
er búin að fá útúr öllum prófum nema 2... það gekk bara ágætlega og er öllu náð, og veit ég svo sem líka að hinum tveimur var líka náð... sem er alltaf góður kostur.. en það er samt samasem merki á það að ég er að fara á þriðja ár = BA ritgerð.. vúbbí dú.. annað merki um það að maður sé að fullorðnast.. hehe
en ég var svo sem ekkert að grínast með að ég hef ekkert merkilegt að segja.. ákvað bara að henda inn bloggfærslu því að bróðir minn lét útúr sér um daginn "Hey Anna, veistu hver er munurinn á þér og Birni Bjarnasyni? Hann bloggar en ekki þú!!!" en ég vil ekki vera öðruvísi en hann Björn minn... enda er hann mega kúl (vá hvað allir vinstri sinnuðu vinir mínir eiga eftir að missa sig núna!!!)... hehe... ÉG VAR AÐ DJÓKA.. eða ekki.... það er mitt að vita og ykkar að reyna að komast að.. hehe
sumarið er komið... það þýðir að það er stutt í bryggjuhátíð.. ennþá styttra í hamingjudaga á hólmavík en ennþá lengra í verslunnarmannahelgina...
well hef ekkert meira að segja í bili held ég...
þannig ég kveð bara
see ya
Miklar pćlingar í gangiAnna Guđrún Halldórsdóttir
núna þessa dagana þarf maður að fara að sækja um hvaða áfanga maður ætlar að sitja á næsta skólaári.. og þá kemur upp sama pælingin og venjulega hvaða valáfanga maður á að taka... eins og á þessu skólaári eru valáfangarnir í félagsráðgjöfinni alls ekki spennandi þannig maður verður að leita á mið aðra deilda og þá kemur líka upp vesenið um að sækja um undanþágu til þess að fá það metið uppí BA gráðu í félagsráðgjöf...ALLAVEGA... þegar ég er búin að vera að skoða og skoða hvað er í boði í öðrum deildum fór ég líka að hugsa hvað í fjandum ég ætti að gera varðandi Masters nám.. fór líka að hugsa hvort ég ætti að fara að taka einhverja aukagrein með félagsráðgjöfinni... eins og t.d. markaðs og alþjóðaviðskipti... já... sumir eru kannski að hugsa "öööö HA? Anna að taka eitthvað svona kjaftæði".. jájá.. allt í einu er mig farið að langa að stússast í viðskiptum og fyrirtækjablebleble...
EN svo kom það... hún Sigga Rún vinkona mín benti mér á GEGGJAÐ mastersnám... sem mun taka 3 annir þannig ef ég fer í það verð ég sko komin með MS gráðu fyrir 25 ára aldur... Kúl? já ég held það bara.. og þá get ég bara farið í það að finna mér mann (já ef hann verður bara ekki fundinn fyrir það) og farið að drita niður börnum eða eitthvað svoleiðis kjaftæði...
HEY ætti ég kannski að segja ykkur hvaða nám ég er að tala um? Já ég er nefnilega að tala um Mannauðsstjórnun... Þetta nám byggist mjög mikið upp á stjórnun og forystu... ef ykkur langar að sjá meira um það nám er það hægt á þessari síðu: https://ugla.hi.is/kennsluskra/index.php?tab=nam&chapter=namsleid&id=044780_20070
ALLAVEGA... er ég nörd eða?
páskarnirAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja þá eru páskarnir búnir, frekar snemma í ár... venjulega er það þannig að það koma páskar og síðan er bara vika eða svo í prófin... núna eru það páskar og svo endalaus verkefna vinna... það verður ekkert smá mikið að gera hjá mér í apríl að ætli ég komi nokkru öðru í verk en að vinna og læra... góða fólk.. endilega EKKI draga mig á djammið í apríl... segið mér frekar að fara bara að læra.. heheég fór heim um páskana og það var bara fínt eins og venjulega... endalaus afslöppun og kökuveislur... fór á eitt ball inná hólmavík sem var bara gaman... langt síðan maður hefur farið á Riis og svona margir voru á ballinu...
vonbrigði páskana voru að öllum líkindum liverpool leikurinn á páskadag... vorum öll frændsystkinin heima hjá Halldóri Loga spennt fyrir leiknum, og öll Liverpool aðdáendur eins og okkur ber að vera, enda er það að okkar mati eina liðið sem er þess virði að halda með... en því miður voru okkar menn ekki í stuði þann daginn, ætli þeir hafi ekki bara borðað aðeins of mikið af páskaeggjum áður en þeir fóru inná völlinn! haha...
well.. veit óskup lítið hvað ég á að segja ykkur... Ingólfur varð geðveikur um páskana og fór framaf kletti á snjósleða.. stökk örugglega um 10 metra drengurinn.. .úff.. þetta er svakalegt myndband sem hægt er að sjá inná síðu strandatröllanna...
var bara að koma heim og er roslega þreytt eitthvað.. en skal reyna að skrifa oftar hér inn... hef fengið kvartanir um það að ég hafi ekki verið nógu dugleg að blogga.. skal reyna að koma því í kring að ég geri það oftar.. hef bara óskup lítið að segja þar sem líf mitt er alltaf eins bara... vinna, læra og djamm.. hehe...
já get sagt ykkur að það er allsvakalega stutt þangað til ég fer til spánar!! djöfull hlakka ég til!!!
allavega see ya
ferđasaganAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja... fyrir ykkur sem vita það ekki þá fór ég í rode trip til skagastrandar á laugardaginn... hér kemur sagan um það hvernig þetta fór fram...kl er um 9 á laugardagskvöldi... við sitjum nokkur heima hjá mér á sumbli og erum svona að pæla hvað við eigum að gera.. erum svona að hugsa um að fara bara í keilu eða eitthvað þannig þar sem veðrið var svo brjálað að við nenntum nú ekki mikið að vera að fara niðrí bæ... Ákváðum við Anna Valdís þá að hringja í Magneu þar sem við áttuðum okkur á því að það vantaði bara hana og þá var allt Spánarfaraliðið mætt á svæðið... hún segir okkur að hún sé að mála sig og sé síðan að fara í partý og á Kántrýbæ að djamma...
kl um 9.15 þá erum við lögð af stað út heima að ná í vetrardæmi í bílinn hans Haffa því við erum að fara að leggja af stað til Skagastrandar að djamma með Magneu... erfitt er að segja hver það var sem að ákvað að við værum að fara því allir héldu að við værum bara að djóka... held samt að það hafi verið Patti sem stóð fyrst upp og sagði "ok förum!"... haldið var á N1 uppá ártúnshöfða til að fylla af olíu krúserinn hans Haffa því auðvitað þurfti að fara á honum vegna veðurs... þar einmitt beiluðu Gunni og Pála sem munu vera kennd við beilera það sem eftir er...
rúmlega 10 erum við svo að driva útúr bænum... vúhú! við erum á leið á skagaströnd.. magnea var í beinu sambandi í gegnum símann að hugsa hversu kreisí vini hún ætti en auðvitað var hún mega glöð að vera að fá okkur.... aðsjálfsögðu því við erum alveg MEGA skemmtileg!!
Ferðin í bílnum gekk áfallalaust fyrir sig... vorum stoppuð af löggunni til þess að athuga hvert ferð okkar væri haldið þar sem Holtavörðuheiðin væri lokuð.. við sögðumst vera á leið til Skagastrandar og löggan sagði okkur að við kæmumst auðveldlega á þessum bíl yfir heiðina og að við ættum að skammast okkar ef við festumst og þyrftum að kalla á þá! haha... Björgunarsveitin stoppaði okkur líka og fengum við svipað frá þeim.. við vorum náttla á algjörum fjallabíl!!
Helsta sem gerðist var að við Anna þurftum náttla mjöööög að pissa þar sem við vorum afturí að sötra bjór.. það þurfti því að stoppa við brú þar sem við fundum okkur skjól í þessum nístingskulda til að pissa.. ég er ennþá að bíða eftir einkennum af blöðrubólgu! haha...
á Skagaströnd var stuð.. við tvöfölduðum fjöldann á Kántrý (hehe nánast allavega) en Magnea var ekkret smá glöð að fá okkur og þegar búið var að loka skelltum við okkur bara í herbergið hennar magneu þar sem kjaftað var fram eftir morgni... fengum alveg að heyra það frá skagstrendingum hvað við værum kreisí.. haha... já og hvað einn einstaklingur væri mega flottur en það er allt önnur saga.. haha...
ALLAVEGA... lögðum af stað suður aftur rúmlega 12 daginn eftir en þá var færðin bara mjög góð... smá blint uppá holtavörðuheiði en hún var þó allavega ekki lokuð.. hehe...
djö var þetta skemmtileg ferð... úff...
allavega
heyrumst
eins og ţađ á ađ veraAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja þá er lífði farið að vera eins og það á að vera... vinna, skóli, djamma.... þannig er það víst...annars er óskup lítið að frétta af mér.. ætla mér að fara á akureyri í febrúar... ÆTLA sko...
annars ákvað ég að blogga því ég er í sjokki... Heath Ledger er dáinn!!! http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/01/22/heath_ledger_latinn/
sjokking.. góður leikari þar á ferð og náttla svoooooo hot!!!
allavega
heyrumst
Jólin búinAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja þá eru jólin búin og veðrið hagar sér bara eftir því... hér á Drangsnesi yfir jólin var snjókomma og stundum bilur, allt út í snjó... en núna vaknaði ég í morgun og nánast allur snjórinn farinn!! það er bara 6 stiga hiti eða eitthvað þannig og logn... þetta er nú skrítið hvernig þetta gerist, eins og veðrið hafi bara fundið þetta á sér.. hehe... vona allavega að það verði ekki endalaust rok og rigning í rvk núna á nýju ári... er komin með ÓGEÐ á veðrinu þarna í rvk... spurning um að flytja sig í HA bara? hahajá ég gleymdi, GLEÐILEGT NÝTT ÁR!! það er komið árið 2008.... ég man hér í gamla daga þegar það var árið 1993 eða svo og manni fannst eins og árið 2000 væri svo fjarstæðukennt eitthvað... á þeim tíma fannst mér að ég myndi aldrei fremast, það var eitthvað svo langt í burtu... svo fermdist ég og þá fannst mér svo langt í burtu að ég myndi nokkurn tíman fara í menntaskóla.... og auðvitað stuttu seinna fór ég í Menntaskólann á Akureyri... þá fannst mér eins og ég myndi aldrei getað klárað hann og fara í háskóla.... núna er ég á öðru ári í Háskóla Íslands að læra að verða félagsráðgjafi.... furðulegt hvernig hlutirnir koma bara... þótt manni líði eins og eitthvað verði aldrei búið þá líkur því víst alltaf á endanum... þótt mér líði þannig núna að ég verði aldrei búin með skólann, muni aldrei fá mér almennilega vinnu og kaupa íbúð og stofna fjölskyldu þá kemur það víst með tímanum eins og allt annað... tíminn er furðulegt fyrirbæri...
jólin voru bara mjög góð hjá mér og áramótin líka, alltaf gott að vera bara í faðmi fjölskyldunnar... prófaði að vera í Reykjavík á seinustu áramótum, sem var alveg fínt en það vantaði mömmu og pabba... svona er að vera litla barnið... maður vill hafa allt eins og það hefur alltaf verið... hehe...
hlakka samt til að komast aftur til reykjavíkur og að hlutirnir fari aftur í sama farið... skóli, ræktin, vinna o.s.frv... ætla líka að reyna að komast til Akureyrar sem fyrst! held að það sé alveg kominn tími á það að ég fari og rækti vinskapinn við gömlu góðu vinina þar... en auðvitað eru þessir nýju algjör snilld líka...
er búin að ná öllum prófunum sem ég er búin að fá einkunn útúr.. á eftir að fá eina einkunn, vona það besta en er svo sem ekkert svakaleg bjartsýn! þessir helv kennarar fá eitthvað útúr því að prófa úr hlutum sem eru algjört aukaatriði og sleppa þeim sem að maður telur vera aðalatriðið!
árið 2007 var bara gott ár tel ég... ekkert svakalegt sem gerðist þannig þetta var bara rólegt og gott ár... vona að árið 2008 verði líka gott, enda er ég að fara t.d. til Spánar í sumar!! flýg út á afmælisdaginn minn 5.júní... rosalega hlakka ég mikið til!!! fer með bestu vinunum þannig þetta getur varla klikkað!! skil reyndar nokkra góða eftir heima en hey! allir velkomnir með sko!
ætli þetta sé ekki orðið nógu langt blogg hjá mér... nennir pott þétt enginn að lesa þetta... ef einhver les bloggið yfir höfuð enþá þar sem ég er orðin svo svakalega léleg að blogga...
vona að þið hafið haft það gott um jólin og áramótin!
kveðja
Anna Guðrún
jólinAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja jólin eru komin eina ferðina enn... er það bara ég sem tek eftir því hvað tíminn er allsvakalega fljótur að líða?? nei bara pælingJæja börnin mín.. ég sendi engin jólakort í ár þannig ég vil bara óska ykkur gleðilegra jóla í gegnum netið ;)
þannig GLEÐILEG JÓL OG GOTT FARSÆLT KOMANDI ÁR :)
hehe.. varð að henda þessu inn.. var nefnilega svo ansk seint búin í prófum að ég bóstaflega NENNTI EKKI að skrifa jólakort.... hehe
allavega allt gott að frétta af mér... er bara heima í mega afslöppun hjá mömmu og pabba... ohh það er svooo gott að komast heim öðru hverju...
vona að þið hafið það líka gott um jólin
kveðja
ég
prófAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja.. þá eru prófin að byrja... eru ekki allir alveg mega spenntir? vúhú... er svooo ekki að nenna þessu núna.. gæfi allt fyrir að þau væru bara búin og að það væru komin jól...allavega þá er próftaflan mín þannig að ég er í prófi 11.desember, 14.desember og svo 20.desember... síðan skilst mér að ég fari þó ekki heim fyrr en 22.desember þar sem allir eru að reyna að PLATA mig á eitthvað próflokadjamm... auk þess sem að hún Freyja verður að útskrifast þannig ég þarf víst að láta sjá mig þar líka... hehe.. og sjáiði hvað ég er saklaus, PLATA mig.. haha...
veit óskup lítið hverju ég á að deila með ykkur... eina sem ég hef að segja er að ég er komin í próf sem þýðir að maður verður ógeðslegur og allt það...
þannig
see ya
