Jólin búinAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja þá eru jólin búin og veðrið hagar sér bara eftir því... hér á Drangsnesi yfir jólin var snjókomma og stundum bilur, allt út í snjó... en núna vaknaði ég í morgun og nánast allur snjórinn farinn!! það er bara 6 stiga hiti eða eitthvað þannig og logn... þetta er nú skrítið hvernig þetta gerist, eins og veðrið hafi bara fundið þetta á sér.. hehe... vona allavega að það verði ekki endalaust rok og rigning í rvk núna á nýju ári... er komin með ÓGEÐ á veðrinu þarna í rvk... spurning um að flytja sig í HA bara? hahajá ég gleymdi, GLEÐILEGT NÝTT ÁR!! það er komið árið 2008.... ég man hér í gamla daga þegar það var árið 1993 eða svo og manni fannst eins og árið 2000 væri svo fjarstæðukennt eitthvað... á þeim tíma fannst mér að ég myndi aldrei fremast, það var eitthvað svo langt í burtu... svo fermdist ég og þá fannst mér svo langt í burtu að ég myndi nokkurn tíman fara í menntaskóla.... og auðvitað stuttu seinna fór ég í Menntaskólann á Akureyri... þá fannst mér eins og ég myndi aldrei getað klárað hann og fara í háskóla.... núna er ég á öðru ári í Háskóla Íslands að læra að verða félagsráðgjafi.... furðulegt hvernig hlutirnir koma bara... þótt manni líði eins og eitthvað verði aldrei búið þá líkur því víst alltaf á endanum... þótt mér líði þannig núna að ég verði aldrei búin með skólann, muni aldrei fá mér almennilega vinnu og kaupa íbúð og stofna fjölskyldu þá kemur það víst með tímanum eins og allt annað... tíminn er furðulegt fyrirbæri...
jólin voru bara mjög góð hjá mér og áramótin líka, alltaf gott að vera bara í faðmi fjölskyldunnar... prófaði að vera í Reykjavík á seinustu áramótum, sem var alveg fínt en það vantaði mömmu og pabba... svona er að vera litla barnið... maður vill hafa allt eins og það hefur alltaf verið... hehe...
hlakka samt til að komast aftur til reykjavíkur og að hlutirnir fari aftur í sama farið... skóli, ræktin, vinna o.s.frv... ætla líka að reyna að komast til Akureyrar sem fyrst! held að það sé alveg kominn tími á það að ég fari og rækti vinskapinn við gömlu góðu vinina þar... en auðvitað eru þessir nýju algjör snilld líka...
er búin að ná öllum prófunum sem ég er búin að fá einkunn útúr.. á eftir að fá eina einkunn, vona það besta en er svo sem ekkert svakaleg bjartsýn! þessir helv kennarar fá eitthvað útúr því að prófa úr hlutum sem eru algjört aukaatriði og sleppa þeim sem að maður telur vera aðalatriðið!
árið 2007 var bara gott ár tel ég... ekkert svakalegt sem gerðist þannig þetta var bara rólegt og gott ár... vona að árið 2008 verði líka gott, enda er ég að fara t.d. til Spánar í sumar!! flýg út á afmælisdaginn minn 5.júní... rosalega hlakka ég mikið til!!! fer með bestu vinunum þannig þetta getur varla klikkað!! skil reyndar nokkra góða eftir heima en hey! allir velkomnir með sko!
ætli þetta sé ekki orðið nógu langt blogg hjá mér... nennir pott þétt enginn að lesa þetta... ef einhver les bloggið yfir höfuð enþá þar sem ég er orðin svo svakalega léleg að blogga...
vona að þið hafið haft það gott um jólin og áramótin!
kveðja
Anna Guðrún
Athugasemdir
1
Elín Sif skrifar:
Gleðilegt nýtt ár sæta :)
03. janúar 2008 klukkan 18:00
2
Lína skrifar:
jabb, HA er málið sko..!
10. janúar 2008 klukkan 10:46
3
Krissa skrifar:
sæta sæta... bara að pakka niður og koma hingað norður til okkar.... it has gotten my vote ;)
15. janúar 2008 klukkan 00:37
4
berglind björk skrifar:
hææ sæta! ætlaru ekki að skella þér norður á þorrablótið? :)
16. janúar 2008 klukkan 15:35
