páskarnirAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja þá eru páskarnir búnir, frekar snemma í ár... venjulega er það þannig að það koma páskar og síðan er bara vika eða svo í prófin... núna eru það páskar og svo endalaus verkefna vinna... það verður ekkert smá mikið að gera hjá mér í apríl að ætli ég komi nokkru öðru í verk en að vinna og læra... góða fólk.. endilega EKKI draga mig á djammið í apríl... segið mér frekar að fara bara að læra.. heheég fór heim um páskana og það var bara fínt eins og venjulega... endalaus afslöppun og kökuveislur... fór á eitt ball inná hólmavík sem var bara gaman... langt síðan maður hefur farið á Riis og svona margir voru á ballinu...
vonbrigði páskana voru að öllum líkindum liverpool leikurinn á páskadag... vorum öll frændsystkinin heima hjá Halldóri Loga spennt fyrir leiknum, og öll Liverpool aðdáendur eins og okkur ber að vera, enda er það að okkar mati eina liðið sem er þess virði að halda með... en því miður voru okkar menn ekki í stuði þann daginn, ætli þeir hafi ekki bara borðað aðeins of mikið af páskaeggjum áður en þeir fóru inná völlinn! haha...
well.. veit óskup lítið hvað ég á að segja ykkur... Ingólfur varð geðveikur um páskana og fór framaf kletti á snjósleða.. stökk örugglega um 10 metra drengurinn.. .úff.. þetta er svakalegt myndband sem hægt er að sjá inná síðu strandatröllanna...
var bara að koma heim og er roslega þreytt eitthvað.. en skal reyna að skrifa oftar hér inn... hef fengið kvartanir um það að ég hafi ekki verið nógu dugleg að blogga.. skal reyna að koma því í kring að ég geri það oftar.. hef bara óskup lítið að segja þar sem líf mitt er alltaf eins bara... vinna, læra og djamm.. hehe...
já get sagt ykkur að það er allsvakalega stutt þangað til ég fer til spánar!! djöfull hlakka ég til!!!
allavega see ya
Athugasemdir
1
Hafrún skrifar:
Hæ hó, missti ég af skemmtilegu balli á Riis? Sýndist það á myndunum sem ég hef séð af ykkur Unni D, að þið hafið haft það gott þar! heyrumst síðar
25. mars 2008 klukkan 19:01
2
Krissa skrifar:
jey... nýtt blogg... loksins loksins sæta mín ;)
27. mars 2008 klukkan 17:41
