101 ReykjavíkAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja þá er maður kominn á nýja heimilið sitt næstu 4 árin... vúhú... finnst fínt að vera komin suður að hitta fólkið mitt.. fékk samt mega löngun til þess að fara á Akureyri þegar ég var að keyra hingað... en það er víst ekki á stefnuskránni að búa þar allavega næstu 4-5 árin þannig ég verð bara að vera róleg...annars er óskup lítið að frétta af mér... er bara góð í dag... er að fara í 30 ára afmæli hjá henni önnu minni í kvöld.. þannig djamm í kef it is! DJ Páll Óskar á Trix! vúhú!
hef annars ekkert að segja.. þannig
adios!
jćja hvađ er ađ frétta?Anna Guđrún Halldórsdóttir
já hvað er eiginlega að frétta af mér þessa dagana?ég er komin með vinnu í Reykjavík í vetur... ég verð að vinna á frístundaheimilinu við Grandaskóla... fyrir þá sem vita ekki hvað það er þá er það svona skóladagheimili... ég verð sem sagt með 1-4 bekk (held ég) seinnipartinn 3 daga í viku eftir að skóladegi líkur og þangað til foreldrarnir eru búnir í vinnu, sem sagt um 5 leytið.... svaka stuð.. bara gaman að getað leikið við litla krakka, hef mjög gaman af þessum aldri... vona bara að ég eigi eftir að standa mig í þessari vinnu.. hehe... ég mun byrja í heni bara strax 20.ágúst... ég þarf sem sagt að vera komin í bæinn á fimmtudagskvöldi eða eldsnemma á föstudegi til þess að hitta forstöðukonuna.. hún réð mig bara í gegnum síma (er greinilega með svona góða símarödd hehe) en fannst svona skemmtilegra að vera búin að hitta mig einu sinni áður en ég byrja að vinna þannig ég þarf að hitta hana föstudaginn 17... mega stuð....
annars er nú bara óskup lítið annað að frétta af mér... hlakka ekkert smá til að fara suður og hitta alla þessa blessuðu vini mína aftur.. hehe... og fara í bíó! hef ekki ennþá séð Harry Potter eða Simpson! eins gott að það sé einhver ekki búinn að sjá þær og getur komið með mér... einhver sem býður sig fram?
ætti maður að skella sér á ball á holmó í kvöld? pæling.....
Verslunnarmannahelgin 2007Anna Guđrún Halldórsdóttir
já svona var versló hjá mér í ár...föstudagur: ég fór í bústað... þar var tjillað og grillað og sötraður bjór.. pottur um kvöldið... farin að sofa um 12 leytið...
laugardagur: hmmm.... fór í niðrí borganes að versla... labbað niðrað glanna og paradísarlaut... um kvöldið tjillaði ég svo með gamlingjunum á skaganum.. mjög fyndið að þegar við Patti lágum uppí sófa eins og skötur þá segi ég "geriru þér grein fyrir því að það er versló?" og hann segir "jámm... var einmitt að hugsa það hvað þetta væri asnalegt, ég hef afsökun, hver er þín eiginlega?" en já.. ég hafði sem sagt enga afsökun nema peningaleysi... piff...
fór líka í afmæli til frigga frænda sem er orðinn 60 ára kallinn... svaka stuð og mikið um neðanbeltishúmor.. þessi fjölskylda sem ég á.. piff... farið að sofa um 2 leytið...
sunnudagur: hmmm... ég labbaði í kringum hreðavatn.... það tók 2 klst... varð að vera dugleg og ekki dragast aftur úr þar sem ég ætlaði sko ekki að viðurkenna það að ég sé í verra formi heldur en foreldrar mínir og AFI... en þetta var stuð... síðan var bara farið að kaupa ís... gaman að segja frá því samt að í síðdegiskaffi fengum við okkur hangikjöt og svið.... já... svona er lífið......
á sunnudagskvöldinu fann ég svoldið mikið fyrir því að það væru allir að skemmta sér nema ég... var að hlusta á árna johnsen á rás 2 og bara ohhhhhhhhh.. langaði svo að vera á brekkusöng með bjór... þetta kvöld fór ég að sofa um 1....
allavega.. eins og halldór logi frændi minn orðaði það þá verð ég bara að bæta það upp einhverja helgina að hafa ekki djammað um versló og taka út allan áfengisskamtinn minn.... úff... hver vill vera memm??
reykjavík föstudaginn 17.ágúst.. einhver spenntur fyrir því að fá mig suður??
Gamla geitAnna Guđrún Halldórsdóttir
já mín er sko orðin gömul... hvernig veit ég það? ég veit það afþví að um verslunnarmannahelgina þar sem flest allir á mínum aldri verða haugadrukknir útí móa þá verð ég í sumarbústað með foreldrum mínum og bróður og ömmu og afa... já.... svona fer lífið með mann skal ég segja þér...En annars er ég bara frekar spennt fyrir þessari helgi... bara tjill og göngur... fara svo í heimsókn til gamla pakksins á skaganum eða eitthvað þannig... held að þetta verði bara gott líf...
ég er ALVEG að vera búin með Potter.. úff svaðaleg bók.. á bara um 40 bls eftir held ég... verst að fólk þarf að koma í sund... ÉG ER SVOOOO SPENNT "#%$!$&!$&
já mér er alveg batnað af þessari pest sem ég fékk allt í einu... alveg ótrúlegt hvernig ég get alltaf orðið veik á frídögum í vinnum og skólum.. hehe... svona hef ég góðar tímasetningar...
Annars er lítið í fréttum hjá mér... lífið snýst um Harry Potter þessa dagana og um hana Gunnhildi mína sem hringir nokkrum sinnum á dag til að tjekka á hvaða bls ég er því hún fær bókina á eftir mér... rosalega myndi vera fyndið ef ég myndi beila á henni.. og rosalega myndi ég fá dauðabölvunina yfir mig... eða kannski hún myndi leifa mér að lifa... og núna bara kvalibölvunina sem gerði foreldra hans Nevils Longbottom geðveik...
svona er lífið þegar það snýst um Harry Potter....
bleeeeAnna Guđrún Halldórsdóttir
Veik? já ég held það barsta.... sem þýðir að ég nenni nú eiginlega ekki að blogga... bara þetta helsta samt:Það var GEGGJAÐ á Bryggjuhátíðinni...
Akureyri um versló? hugsa að það sé alvarlega málið...
BryggjuhátíđAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja góðu lesendur... þá er bryggjuhátíðin á næstu helgi.. það eru bara 4 dagar í bryggjuhátiðina!!! jeyyy!!Það er allt búið að vera á fullu hérna við að gera allt fínt og flott fyrir helgina... ég svona prívat og persónulega er búin að vera mega dugleg við að slá með orfi svona hitt og þetta ásamt honum pabba mínum... við erum svo svakalega dugleg við feðginin... svo erum við mæðgur líka búnar að vera duglega að baka.. en þá aðallega hún mamma mín sem er all svaðalega ofvirk þegar það kemur að bakstri...
Mér heyrist allir vera að koma á hátíðina... enda eru þeir sem koma ekki bara aular og hálfvitar (og heyriði það Golli og Magnea!!)... það verður svo svakalega gaman eins og öll hin árin að það hálfa væri nánast hellingur
það er búið að vera hreint æðislegt veður hérna í þessari viku og er ég búin að liggja í sólbaði á fullu.. enda er ég orðin svaka brún(rauð) og held að ég sé komin með smá vott af sólarexemi... úps... svo er ég líka komin með stórskemmtileg för sem ég ætla ekki að segja hvar eru því hann bróðir minn myndi örugglega deyja úr hlátri.. í bókstaflegri merkingu.. það verður reynt að fela þessi för um helgina á meðan hann er hér...
En vá, held að það séu bókstaflega engin orð sem geta lýst því hversu spennt ég er fyrir þessari helgi... finnst samt einhvernveginn alveg ótrúlega ótrúlegt að þetta sé svona stutt í burtu.. en tilhugsunin venst alveg örugglega ekki fyrr en á föstudaginn bara.. bíst ekki við öðru...
jæja... ætli það sé ekki best að fara að gera eitthvað af viti, eins og t.d. lesa mbl.is haha...
sjáumst fersk á bryggjuhátíðinni
Ísland í dagAnna Guđrún Halldórsdóttir
er ekki allt í lagi með fólk? hvernig er Ísland í dag eiginlega orðið???ég er mega reið... úff...
er samfélagið í dag orðið þannig að nauðgun er allt í lagi? kemst maður bara upp með nauðgun ef maður segir að hún hafi aldrei neitað? hvenær í fjandanum sagði hún "ójá haltu áfram, þetta er gott svona!"
ég var að lesa áðan yfirheyrslunar og það allt dæmið yfir nauðgunina sem var á hótel sögu... þúst KOMMON!!! hún var alltaf að reyna að ýta honum af sér... hún var í sjokki.. það eru ekki margir sem bregðast við einhverju þannig að þeir öskri og brjálist... sumir bregðast við áteiti og sjokki þannig að þeir frjósi og geti ekki hreyft sig... er nauðgun á þeim leyfileg?
er það líka orðið þannig í dag að ef maður spyr einhvern hvar klósettið sé að það sé boð um að ég sé að fara niður og vilji fá þig á eftir mér að ríða inná klósetti? fannst það allavega á þessu dæmi....
hvernig er ísland í dag orðið ef við leyfum þeim sem fremja svona verknað að komast upp með það?
dómskerfið á Íslandi í dag er greinilega bara eitthvað djók..........
Írskir dagarAnna Guđrún Halldórsdóttir
jæja þá er maður kominn heim af írskum dögum.. djö var gaman..... takk fyrir góða helgi gott fólk...næst er það bara bryggjuhátíðin!! vúhú!!
vá hvað ég er orðin löt við að blogga.. svæsa...
kannski lagst það... með tíð og tíma...
Get ekki beđiđAnna Guđrún Halldórsdóttir
er svo þvílíkt spennt fyrir því að ég er að fara á írska daga á næstu helgi... ÉG GET EKKI BEÐIÐ!!vonast til að hitta sem flesta þar......
sumariđ 2007Anna Guđrún Halldórsdóttir
jæja.. þá er sumarið byrjað á fullu og ég er búin að fara á bíladaga.. hvað á fleira eftir að gerast í mínu lífi í sumar??- næst á dagsskrá eru Hamingjudagar á Hólmavík á næstu helgi.. það sem stendur uppúr þá helgi er að sjálfsögðu fótboltinn en auðvitað er líka svaka stuð og svaka gaman að hitta ættingjanna.. Sævar Eðvald verður líka 2 ára snáðinn á sunnudaginn 1.júlí.. hann er orðinn svo stór þessi elska...
- helgina þar á eftir eru Írskir dagar á Akranesi... það sem stendur uppúr þeirri helgi er alveg örugglega að hitta alla þessu frábæru vini sem ég á þarna á svæðinu... Patti á afmæli 4.júlí og svo Magnea 9.júlí þannig það verður örugglega haldið uppá það þarna... Gisti hjá Erlu minni og ungunum hennar sem eru ÆÐI...
- Laus helgi í ekkert vesen.. þessa helgi verður sofið og slakað á skal ég segja ykkur...
- BRYGGJUHÁTÍÐ Á DRANGSNESI!!! algjörlega hápunktur sumarsins... ætla ekki alveg örugglega ALLIR að mæta?
- Á sunnudeginum eða mánudeginum ætlum við vinirnir svo að halda í hringferð.. jeyyyy!!!! hef ekki farið á austurland síðan ég var krakki.. hehe
- þegar þessu öllu er lokið er það eina sem er eftir að fara á Akureyri á verslunnarmannahelgi.. seinni hlutinn í boltanum og síðan að flytja aftur suður... GET EKKI BEÐIÐ! sakna allra svo all svakalega mikið...
endilega deiliði með mér elsku vinir ef ykkar plön passa við mín.. þá er alltaf gaman að hitta fólk og svona...
heyrumst
